Hver sjóðfélagi sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins á rétt á örorkulífeyri ef hann verður fyrir orkutapi er
tryggingayfirlæknir metur 10% eða meira. Örorkumat þetta skal aðalega miðað við vanhæfni sjóðfélaga til að gegna starfi
því er hann hefur gegnt og aðild hans að sjóðnum er tengd. Þrátt fyrir örorku á engin rétt á örorkulífeyri
meðan hann heldur fullum föstum launum fyrir starf það er hann gegndi eða fær jafnhá laun fyrir annað starf sem veitir
lífeyrissjóðsréttindi og aldrei skal örorkulífeyrir vera hærri en sem nemur þeim tekjumissi sem sjóðsfélaginn hefur sannanlega
orðið fyrir sökum örorkunnar. Hámark örorkulífeyris miðast við áunnin lífeyrisrétt til eftirlauna í A-deild. Hafi
sjóðsfélaginn greitt iðgjöld til sjóðsins undanfarin 3 almanaksár og a.m.k. í 6 mánuði á undanfarandi 12 mánuðum
miðast hámark örorkulífeyris þó við þennan áunna lífeyrisrétt að viðbættum einstaklingslífeyri
almannatrygginga. Ef rekja má aðalorsök örorkunnar til starfs í þágu stöðu þeirrar sem öryrkinn gegndi síðast skal
þó reikna áunnin lífeyrisrétt eins og sjóðfélaginn hefði gegnt stöðu sinni til 65 ára aldurs og skulu áunnin
lífeyrisréttindi þá reiknast af launum í því starfi sem sjóðfélaginn gegndi síðast eins og þau eru á hverjum
tíma.
Flýtilyklar
Örorkulífeyrir A-deildar
Leit
