Stjórn sjóðsins skipa bæjarstjóri sem er formaður sjóðsstjórnar, tveir bæjarfulltrúar sem bæjarstjórn kýs
á sama hátt og fastar nefndir til fjögurra ára og tveir sjóðsfélagar tilnefndir til fjögurra ára af Starfsmannafélagi
Akureyrarbæjar. Fjórir varamenn skulu tilnefndir á sama hátt og til jafnlangs tíma. Stjórn sjóðsins ræður framkvæmdastjóra,
ákveður laun hans og önnur starfskjör og setur honum starfsreglur. Framkvæmdastjórinn er ekki kjörgengur sem stjórnarmaður í
sjóðnum. Framkvæmdastjóri LSA er Kári Arnór Kárason en hann er jafnframt framkvæmdastjóri Stapa
lífeyrissjóðs.
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar skipa frá 28. júní 2010:
Aðalmenn:
Eiríkur Björn Björgvinsson - Akureyrarbæ
Oddur Helgi Halldórsson - Akureyrarbæ
Hermann Jón Tómasson - Akureyrarbæ
Arna Jakobína Björnsdóttir - Kjölur
Hanna Rósa Sveinsdóttir - Kjölur
Varamenn:
Halla Björk Reynisdóttir - Akureyrarbæ
Sigrún Stefánsdóttir - Akureyrarbæ
Kristín Sigurðardóttir - Kjölur
Regina Reginsdóttir - Kjölur
Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við stjórnir annarra lífeyrissjóða um að sjá um rekstur sjóðsins eða að sjóðirnir hafi sameiginlegt skrifstofuhald og/eða samstarf um ávöxtun fjármuna. Við gerð slíkra samninga skal þess gætt að rekstrarkostnaði sé skipt með eðlilegum og ótvíræðum hætti milli aðila og í samræmi við samkomulag stjórna viðkomandi sjóða. Sama á við um skiptingu á ávinningi eða tapi ef um samstarf um ávöxtun fjármuna er að ræða. Á sama hátt er stjórninni heimilt að gera samninga um rekstur og ávöxtun við banka eða verðbréfafyrirtæki, eða aðra þá aðila er til þess hafa færni og þekkingu. Stjórn sjóðsins hefur nýtt sér heimild skv. þessari grein og gert rekstrarsamning um rekstur sjóðsins við Stapa lífeyrissjóð.
Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn, svo og endurskoðendur lífeyrissjóðsins, eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um í starfi og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.