Ingi Björnsson ráðinn framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs

Stjórn Stapa hefur gengið frá ráðningu í starf framkvæmdastjóra Stapa lífeyrissjóðs. Var Ingi Björnsson valinn úr hópi 18 umsækjenda og mun hann taka til starfa á næstu mánuðum.

Ingi hefur mastersgráðu í hagfræði frá Göteborgs Universitet og lauk B.Sc. gráðu í hagfræði frá sama skóla.

Hann hefur gengt ýmsum stjórnunarstörfum og hefur víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði, bæði sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður.  Undanfarin 16 ár hefur  hann starfað hjá Íslandsbanka sem útibússtjóri á Akureyri.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs býður Inga innilega velkominn til starfa.