Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar samanstendur af tveimur deildum, A-deild (L030) og B-deild (L031), að auki hefur Endurhæfingarsjóður gert
samkomulag við sjóðinn um innheimtu iðgjalda (R030).
Launagreiðanda er skylt að halda eftir af launum iðgjaldshluta launþega og standa hlutaðeigandi lífeyrissjóði skil á honum ásamt iðgjaldshluta sínum.
Þátttaka í lífeyrissjóði er hluti af starfskjörum launamanna á Íslandi. Um þetta hefur verið samið í kjarasamningum milli samtaka atvinnurekenda og launamanna. Þessi skipan mála hefur verið staðfest með lögum um lífeyrissjóði nr. 129/1997. Almennu lífeyrissjóðirnir eru byggðir á þessum kjarasamningum og þar með aðild launamanna að tilteknum lífeyrissjóði. Sjóðirnir eru skyldugir að tryggja alla launamenn sem eiga rétt á aðild að viðkomandi sjóði, skv. kjarasamningi. Á sama hátt eru launamenn sem falla undir tiltekinn kjarasamning skyldugir að greiða í viðkomandi lífeyrissjóð.
Lög og reglugerðir
A. Löggjöf
B. Reglugerðir

- Lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum.
- Lög nr. 90/2003 um tekjuskatt með síðari breytingum.
- Lög nr. 113/1990 um tryggingagjald, með síðari breytingum.
- Lög nr. 155/1998 um söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.
- Lög nr. 95/2000 um fæðingarorlof og foreldraorlof.
B. Reglugerðir
- Reglugerð nr. 391/1998 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, sbr. reglugerð nr. 742/1998, um breytingu á henni.
- Reglugerð nr. 698/1998 um ráðstöfun iðgjalds til lífeyrissparnaðar og viðbótartryggingavernd, sbr. reglugerð nr. 9/1999, um breytingu á henni.