Fréttir af ársfundi sjóðsins

Síðastliðinn  miðvikudag 17. maí var ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar haldinn að  Strandgötu 3.  Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.

Dan Jens Brynjarsson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2022. Þá fór Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri, yfir ársreikning sjóðsins og áritanir ásamt því að gera grein fyrir tryggingafræðilegri athugun. Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni.  Næst kynnti Jóhann Steinar fjárfestingarstefnu sjóðsins og gerði grein fyrir helstu þáttum í fjárfestingarumhverfi hans.  

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar  skipa: 

Frá Akureyrarbæ:  Dan Jens Brynjarsson, Gunnar Líndal Sigurðsson og Snæbjörn Sigurðarson
Varamaður: Halla Björk Reynisdóttir og Gunnar Már Gunnarsson

Frá Kili:  Arna Jakobína Björnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir
Varamaður: Árni Egilsson og Hafdís Erna Ásbjarnardóttir

Á fundinum voru lagðar til breytingar á fjórum greinum samþykkta sjóðsins. Eru  þær  nauðsynlegar til að samræma ákvæðin við áskilnað laga nr. 129/1997 en lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs sem kveðið er á um í þeim lögum og var hækkað frá og með 1. janúar 2023 úr 12% í 15,5%.  Breytingarnar voru samþykktar samhljóða.

Helstu gögn fundarins: