Íslenska lífeyrissjóðakerfið stenst stefnumarkandi tilmæli OECD

Fjármálaeftirlitið og Landssamtök lífeyrissjóða kynntu þann 4. febrúar sl. helstu niðurstöður nýrrar rannsóknar en rannsókn þessi var hluti fjölþjóðlegs verkefnis með samræmdri aðferðarfræði um nægjanleika lífeyris í ríkjum Efnahags og framfarastofnun Evrópu, OECD.

Það er skemst frá því að segja að íslenska lífeyriskerfið stenst með ágætum stefnumarkandi tilmæli stofnunarinnar og stendur vel að vígi í samanburði við önnur lönd. Meðal helstu styrkleika má nefna eftirfarandi:

  • Sjóðasöfnun er mikil.
  • Öryggisnet almannatrygginga er mikilvægt fyrir lágtekjuhópa.
  • Lífeyrisþegar framtíðarinnar fá almennt meiri lífeyri en nú er greiddur.

Nánari upplýsingar má finna á vef Landssamtaka lífeyrissjóða og einnig er fréttatilkynning Fjármálaeftirlitsins hér. Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér og hvetjum við sjóðfélaga til að kynna sér efnistök hennar.