Ársreikningur staðfestur

Stjórn LSA staðfesti ársreikning sjóðsins á fundi sínum 19. mars sl. Nafnávöxtun síðasta árs var 3,9% sem svarar til 0,7% raunávöxtunar. Meðal raunávöxtun sl. 5 ár er 4% og 3,2% sl. 10 ár.

Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkaði um 0,3% frá fyrra ári og nam í árslok 12.013 milljónum króna.

Alls greiddu 86 sjóðfélagar hjá 6 launagreiðendum iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu og námu þau 76 milljónum króna. Lífeyrisgreiðslur námu 824 milljónum króna og var fjöldi lífeyrisþega 593.

Tryggingafræðileg staða sjóðsins  er neikvæð um 43% en Bæjarsjóður Akureyrar er ábyrgur fyrir skuldbindingum sjóðsins.

Ársreikninginn má finna í heild sinni hér

Ársfundur sjóðsins fer fram þriðjudaginn 30. apríl nk. og verður nánar auglýstur síðar.