Sjóðfélagayfirlit í póstdreifingu

Á næstu dögum berast sjóðfélögum yfirlit með upplýsingum yfir iðgjaldahreyfingar seinni hluta árs 2013. Við hvetjum sjóðfélaga til að bera saman iðgjaldagreiðslur á yfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðlum.  Ef iðgjöld vantar inn á yfirlitið getur sjóðfélagi leitað til starfsfólks Stapa lífeyrissjóðs, sem sér um rekstur sjóðsins, við lausn málsins.

Ef launþegi hefur ekki fengið yfirlit en telur að vinnuveitandi hafi átt að skila til sjóðsins er afar mikilvægt að hafa samband við sjóðinn.

Með sjóðfélagayfirlitum fylgja einnig upplýsingar um helstu niðurstöður ársreiknings 2013, en þær má jafnframt nálgast hér.