9% ávöxtun á fyrri helmingi ársins

Helstu niðurstöður eru þær að ársávöxtun sjóðsins á þessum fyrri helmingi ársins var 8,97% og raunávöxtun 1,71%. Sjóðurinn er að stærstum hluta fjárfestur í innlendum ríkisskuldabréfum og hafa lækkandi vextir á ríkisskuldabréfamarkaði mikil áhrif á afkomu sjóðsins. Meðal raunávöxtun sl. 5 ár er 2,1% og 5% sl. 10 ár.

Alls greiddu 140 sjóðfélagar hjá 8 launagreiðendum iðgöld til sjóðsins á tímabilinu og náum þau 102 milljónum króna.

Lífeyrisþegar á tímabilinu voru 404 og námu lífeyrisgreiðslur 424 millj. kr.

Hrein eign til greiðslu lífeyris nam 8.310 millj. kr. og hafði hækkað um 5,3% frá ársbyrjun.

Tryggingafræðileg staða sjóðsins var neikvæð um 37,1% eða sem nemur 5.344,4 millj. kr.

Akureyrarbær er í ábyrgð fyrir skuldbindingum sjóðsins.