Raunávöxtun LSA 3,4% á árinu 2017

Stjórn LSA og framkvæmdastjóri staðfestu ársreikning sjóðsins á fundi sínum í gær 27. mars. Nafnávöxtun síðasta árs var 5,2% sem svarar til 3,4% raunávöxtunar. Meðalraunávöxtun síðastliðin 5 ár er 5,3% og 3,8% síðastliðin 10 ár.

Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkaði um 10,1% frá fyrra ári og nam í árslok 11.980 milljónum króna.

Alls greiddu 90 sjóðfélagar hjá 7 launagreiðendum iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu og námu þau 96 milljónum króna. Lífeyrisgreiðslur sjóðsins námu 751 milljón króna og var fjöldi lífeyrisþega 553.

Tryggingafræðileg staða sjóðsins batnaði um 316 milljónir króna á árinu  en staða sjóðsins er neikvæð um 39,2%. Bæjarsjóður Akureyrar er ábyrgur fyrir skuldbindingum sjóðsins.

Ársreikninginn má finna í heild sinni hér