Ársreikningur staðfestur

Stjórn LSA staðfesti ársreikning sjóðsins á fundi sínum 22. mars sl.  Nafnávöxtun síðasta árs var 13,5% sem svarar til 8,0% raunávöxtunar. Meðal raunávöxtun sl. 5 ár er 5,1% og 4,7 sl. 10 ár.

Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkaði um 8,0% frá fyrra ári og nam í árslok 14.569 milljónum króna.

Alls greiddu 54 sjóðfélagi hjá 6 launagreiðendum iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu og námu þau 45 milljónum króna. Lífeyrisgreiðslur námu 1.160 milljónum króna og var fjöldi lífeyrisþega 726.

Tryggingafræðileg staða sjóðsins  er neikvæð um 41% en Bæjarsjóður Akureyrar er ábyrgur fyrir skuldbindingum sjóðsins.

Ársreikninginn má finna í heild sinni hér