Fréttir af ársfundi LSA

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar fór fram 18. júní sl. Fundurinn var haldinn að  Strandgötu 3 og á dagskrá voru hefðbundin ársfundarstörf, samþykktarbreytingar og samruni við Brú lífeyrissjóð.

Dan Jens Brynjarsson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2024. Næst fór Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri, yfir ársreikning  og áritanir ásamt því að gera grein fyrir tryggingafræðilegri athugun. Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni.  Því næst kynnti Jóhann Steinar fjárfestingarstefnu sjóðsins og gerði grein fyrir helstu þáttum í fjárfestingarumhverfi hans.  

Stjórnarkjöri var lýst en stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar  skipa: 
Frá Akureyrarbæ:  Dan Jens Brynjarsson, Gunnar Líndal Sigurðsson og Snæbjörn Sigurðarson
Varamenn: Halla Björk Reynisdóttir og Gunnar Már Gunnarsson
Frá Kili:  Arna Jakobína Björnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir
Varamenn: Árni Egilsson og Hafdís Erna Ásbjarnardóttir

Á fundinum voru lagðar til breytingar á fjórum greinum samþykkta sjóðsins. Tilgangur breytinganna  var fyrst og fremst að samræma ákvæði í samþykktum LSA að þeim ákvæðum samþykkta Brúar sem snúa að sjóðsdeildum eldri sveitarfélagasjóða sem runnið hafa saman við Brú á síðustu árum. Breytingarnar voru samþykktar samhljóða.

Á fundinum var einnig lögð fram tillaga um samruna við Brú lífeyrissjóð en fyrir lá viljayfirlýsing sem gefin hafði verið út á grunni bókana bæjarráðs Akureyrarbæjar annars vegar og stjórnar Kjalar hins vegar.  Var það niðurstaða fundar að halda viðræðum við Brú  áfram með það að markmiði að LSA sameinist Brú.

Stjórnin lagði til að KPMG ehf. verði endurskoðunarfyrirtæki sjóðsins og að Ragna Huld Hjartardóttir verði kjörin óháður aðili í endurskoðunarnefnd  sjóðsins. Báðar tillögur voru samþykktar samhljóða.  

Gögn fundarins:
Skýrsla stjórnar
Glærur fundarins
Ársreikningur 2024
Fundargerð ársfundar ( kemur síðar)