Fréttir af ársfundi sjóðsins

Þriðjudaginn 26. júní var ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar haldinn að Strandgötu 3.  Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.

Eiríkur Björn Björgvinsson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2017 . Þá fór Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri, yfir ársreikning sjóðsins og áritanir ásamt því að gera grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu. Var ársreikningur sjóðsins samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni. Einnig kynnti fjárfestingarstjóri Brynjar Þór Hreinsson  fjárfestingarstefnu sjóðsins og gerði grein fyrir helstu þáttum í fjárfestingarumhverfi hans.

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar  skipa:

Frá Akureyrarbæ:  Ásthildur Sturludóttir, Gunnar Gíslason og Halla Björk Reynisdóttir.
Varamenn: Eva Hrund Einarsdóttir og Guðmundur Baldvin Guðmundsson

Frá Kili: Arna Jakobína Björnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir.
Varamenn: Árni Egilsson og Kristinn Bjarnason

Meðfylgjandi eru helstu gögn fundarins: