Fréttir af aukaársfundi

Fimmtudaginn 3. október var aukaársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar haldinn að Strandgötu 3.  Á dagskrá fundarins voru breytingar á samþykktum og stjórnarkjör.

Einar Ingimundarson, lögmaður Stapa, kynnti og  fór yfir tillögur að samþykktarbreytingum. Breytingarnar voru samþykktar samhljóða. Að því loknu greindi Arna Jakobína Björnsdóttir, fundarstjóri, frá skipan stjórnar sbr. 4 gr. samþykkta sjóðins. 

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar  skipa:
Frá Akureyrarbæ:  Dan Jens Brynjarsson (formaður), Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Gunnar Gíslason
Varamenn: Eva Hrund Einarsdóttir og Halla Björk Reynisdóttir
Frá Kili: Arna Jakobína Björnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir
Varamenn: Árni Egilsson og Kristinn Bjarnason

Meðfylgjandi eru helstu gögn fundarins:
Glærur fundarins
Fundargerð aukaársfundar