Lífeyrisgáttin - réttindi í öllum lífeyrissjóðum á einum stað

Algengt er að sjóðfélagar eigi réttindi í fleiri en einum lífeyrissjóði og fram til þessa hafa þeir þurft að sækja sjálfir upplýsingar um lífeyrisréttindi sín.  Með Lífeyrisgáttinni geta sjóðfélagar nú fengið í einu lagi upplýsingar um heildar áunnin lífeyrisréttindi í samtryggingasjóðum sem þeir hafa aflað sér um dagana.

Í tilefni af opnun Lífeyrisgáttarinnar verðum við með sérstakan kynningardag þriðjudaginn 5. nóvember. Þar gefst sjóðfélögum tækifæri á að kynna sér Lífeyrisgáttina og ræða almennt um lífeyrisréttindi sín.

Vegna þessa lengjum við opnunartímann til kl. 19:00 á skristofu Stapa lífeyrissjóðs Strandgötu 3, Akureyri.

Við verðum með heitt á könnunni.  Skorum við á sjóðfélaga að koma og kynna sér málin.