Raunávöxtun LSA 2,3 % á árinu 2016

Stjórn LSA og framkvæmdastjóri staðfestu ársreikning sjóðsins á fundi sínum 14. mars sl. Nafnávöxtun síðasta árs var 4,4% sem svarar til 2,3% raunávöxtunar. Meðal raunávöxtun sl. 5 ár er 5,2% og 3,9% sl. 10 ár.

Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkaði um 0,9% frá fyrra ári og nam í árslok 10.432 milljónum króna.

Alls greiddi 100 sjóðfélagi hjá 7 launagreiðendum iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu og námu þau 51 milljónum króna. Lífeyrisgreiðslur sjóðsins námu 682 milljónum króna og var fjöldi lífeyrisþega 514.

Tryggingafræðileg staða sjóðsins var neikvæð um 42,9% eða sem nemur 7.789 milljónum króna og versnaði staða sjóðsins á árinu. Bæjarsjóður Akureyrar er ábyrgur fyrir skuldbindingum sjóðsins

Ársreikninginn má finna í heild sinni hér.