Sjóðfélagayfirlit í póstdreifingu og á vef

Næstu daga berast sjóðfélögum yfirlit með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar frá 1.  janúar til 30. september 2023.

Við hvetjum sjóðfélaga til að bera saman iðgjaldagreiðslur á yfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðlum.  Ef iðgjöld vantar inn á yfirlitið getur sjóðfélagi leitað til starfsfólks Stapa lífeyrissjóðs, sem sér um rekstur sjóðsins, við lausn málsins.

Ef launþegi hefur ekki fengið yfirlit en telur að vinnuveitandi hafi átt að skila iðgjöldum til sjóðsins er afar mikilvægt að hafa samband við sjóðinn.

Á sjóðfélagavef er alltaf hægt að skoða útsend yfirlit og fylgjast með réttindum.