Lokað fyrir heimsóknir hjá LSA

Skrifstofa LSA verður lokuð fyrir heimsóknir frá og með föstudeginum 20. mars. Ákvörðun um lokun skrifstofunnar er hluti af viðbragðsáætlun sjóðsins vegna útbreiðslu COVID-19. Starfsfólk mun áfram sinna verkefnum og þjónustu við sjóðfélaga, launagreiðendur og aðra sem þurfa að leita til sjóðsins gegnum tölvupóst eða síma. Starfsemin verður skipulögð þannig að sem minnst röskun verði á þjónustu en búast má við að það hægi á einhverjum þáttum.

Á meðan lokunin varir eru sjóðfélegar hvattir til að nýta sér neðangreindar þjónustuleiðir:

Sjóðfélagavefur

  • Á sjóðfélagavef er hægt að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldagreiðslur, sjóðfélagayfirlit o.fl.

Umsóknir

  • Allar umsóknir sjóðsins er að finna á umsóknarvef. 
  • Umsóknum og öðrum gögnum þeim tengdum má senda í tölvupósti á netfangið stapi@stapi.is

Símaþjónusta og tölvupóstur

  • Hægt er að senda fyrirspurnir til sjóðsins í tölvupósti á stapi@stapi.is. Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00-12:30 og 13:00-15:00 í síma 460-4500.

Skil á gögnum

  • Tekið er á móti gögnum í afgreiðslu á skrifstofu sjóðsins í Strandgötu 3, Akureyri.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.