Skrifstofa LSA opin að nýju

LSA hefur opnað skrifstofu sína fyrir heimsóknir. Við hvetjum þá sem eiga erindi við  sjóðinn til að gæta sóttvarna og nýta áfram rafrænar þjónustuleiðir og  þegar hægt er.

Við gætum þess að fara eftir neðangreindum leiðbeiningum:

    • Vera með andlitsgrímu.
    • Virða 2ja metra regluna.
    • Sinna handþvotti og spritta hendur þegar inn er komið.
    • Þeir sem finna fyrir einkennum Covid-19, hafa verið erlendis síðustu 14 daga, bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku eða eru í einangrun eða sóttkví vegna veirunnar eru beðnir um að koma ekki á skrifstofu okkar.

Minnum á eftirtaldar þjónustuleiðir:

  • Sjóðfélagavefur
    Á sjóðfélagavef er hægt að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldagreiðslur, sjóðfélagayfirlit o.fl.
  • Umsóknir
    Allar umsóknir sjóðsins er að finna á umsóknarvef. Umsóknir og önnur gögn þeim tengdum má senda í tölvupósti á netfangið stapi@stapi.is.
  • Símaþjónusta og tölvupóstur
    Hægt er að senda fyrirspurnir til sjóðsins í tölvupósti á stapi@stapi.is. Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00-12:30 og 13:00-15:00 í síma 460-4500.