Skrifstofa LSA opnar að nýju

Skrifstofa LSA á opnar aftur fyrir heimsóknir mánudaginn 31. janúar. Við hvetjum þá sem eiga erindi við sjóðinn til að gæta sóttvarna og nýta áfram rafrænar þjónustuleiðir þegar hægt er.

Við gætum þess að fara eftir neðangreindum leiðbeiningum:

  • Vera með andlitsgrímu.
  • Virða 1 metra regluna.
  • Sinna handþvotti og spritta hendur þegar inn er komið.
  • Þeir sem finna fyrir einkennum Covid-19,  bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku eða eru í einangrun vegna veirunnar eru beðnir um að koma ekki á skrifstofu okkar.
  • Einstaklingar í smitgát eru beðnir um að sýna sérstaka varkárni.

Minnum á eftirtaldar þjónustuleiðir:

  • Sjóðfélagavefur
    Á sjóðfélagavef er hægt að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga, iðgjaldagreiðslur, sjóðfélagayfirlit o.fl.
  • Umsóknir
    Allar umsóknir sjóðsins er að finna á umsóknarvef. Umsóknir og önnur gögn þeim tengdum má senda í tölvupósti á netfangið stapi@stapi.is.
  • Símaþjónusta og tölvupóstur
    Hægt er að senda fyrirspurnir til sjóðsins í tölvupósti á stapi@stapi.is. Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00-12:30 og 13:00-15:00 í síma 460-4500.