Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Það er komið að haustútsendingu sjóðfélagayfirlita og á næstu dögum berast yfirlit með upplýsingum yfir iðgjaldahreyfingar ársins 2015.

Við hvetjum sjóðfélaga til að bera saman iðgjaldagreiðslur á yfirliti við greidd iðgjöld samkvæmt launaseðlum.  Ef iðgjöld vantar inn á yfirlitið getur sjóðfélagi leitað til starfsfólks Stapa lífeyrissjóðs, sem sér um rekstur sjóðsins, við lausn málsins.

Ef launþegi hefur ekki fengið yfirlit en telur að vinnuveitandi hafi átt að skila til sjóðsins er afar mikilvægt að hafa samband við sjóðinn.