Fréttir af ársfundi LSA

Í dag fimmtudaginn 23. júní var ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar haldinn að  Strandgötu 3.  Á dagskrá fundarins voru hefðbundin ársfundarstörf.

Dan Jens Brynjarsson, formaður stjórnar, fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2021. Þá fór Jóhann Steinar Jóhannsson, framkvæmdastjóri, yfir ársreikning sjóðsins og áritanir ásamt því að gera grein fyrir tryggingafræðilegri athugun. Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða að yfirferð lokinni.  Næst kynnti Jóhann Steinar fjárfestingarstefnu sjóðsins og gerði grein fyrir helstu þáttum í fjárfestingarumhverfi hans.  

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar  skipa: 

Frá Akureyrarbæ:  Dan Jens Brynjarsson, Gunnar Líndal Sigurðsson og Snæbjörn Sigurðarson
Varamaður: Halla Björk Reynisdóttir og Gunnar Már Gunnarsson

Frá Kili:  Arna Jakobína Björnsdóttir og Hanna Rósa Sveinsdóttir. 
Varamaður: Árni Egilsson og Hafdís Erna Ásbjarnardóttir

Helstu gögn fundarins: