Fréttir

Tilkynning send sjóðfélögum um samruna við Brú

Í dag var send út tilkynning til sjóðfélaga LSA um samruna við Brú lífeyrissjóð og að um næstu mánaðamót muni Brú greiða út lífeyri til sjóðfélaga LSA. Greiðslutilkynningar birtast á Mínum síðum hjá Brú og Ísland.is á útborgunardegi.

LSA sameinast Brú lífeyrissjóði

Stjórnir Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar og Brúar lífeyrissjóðs hafa samþykkt samruna sjóðanna. Grundvöllur samrunans er að réttindi og réttindaávinnsla sjóðfélaga LSA verður óbreytt sem og bakábyrgð Akureyrarbæjar.

Sjóðfélagayfirlit í póstdreifingu og á vef

Næstu daga berast sjóðfélögum yfirlit með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar frá 1. janúar til 30. september 2025.

Fréttir af ársfundi LSA

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar fór fram 18.júní sl. Fundurinn var haldinn að Strandgötu 3 og á dagskrá voru hefðbundin ársfundarstörf, samþykktarbreytingar og samruni við Brú lífeyrissjóð.

Ársfundur LSA

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar verður haldinn að Strandgötu 3, miðvikudaginn 18. júní kl. 12:00.

Sjóðfélagayfirlit í póstdreifingu og á vef

Næstu daga berast sjóðfélögum yfirlit með upplýsingum um iðgjaldahreyfingar frá 1.janúar til 31.desember 2024.

Ársreikningur 2024

Stjórn LSA staðfesti ársreikning sjóðsins á fundi sínum 20. mars sl. Nafnávöxtun síðasta árs var 10,7% sem svarar til 5,7% raunávöxtunar.

Breytingar á staðgreiðslu frá 1. janúar 2025

Um áramótin voru gerðar breytingar á skatthlutfalli, tekjubili í skattþrepum og fjárhæð persónuafsláttar.